Frábært námskeið, langt umfram væntingar! Ari er með þeim bestu sem ég hef setið hjá, kristaltær og drífandi, og lét okkur byggja alvöru tól og skill sem keyra núna í rekstrinum.…
Lærðu AI
Verkleg AI þjónusta fyrir teymi sem vilja árangur, ekki kenningar.
Claude á Íslandi
Fyrsta sérstaka Claude námskeiðaröðin á Íslandi, núna tveggja daga verklegt námskeið: þú vinnur verkefnin á eigin fartölvu undir leiðsögn. Öll fyrri námskeið hafa selst upp. Næsta námskeið: 23. og 24. nóvember 2026. 79.900 kr á sætið, 15% hópafsláttur fyrir 3 eða fleiri.
Framhaldsvinnustofa
Fjögurra tíma verkleg vinnustofa fyrir þau sem vilja fara dýpra í Claude. Stærri verkflæði og þyngri verkefni: þú smíðar þitt eigið skill, lifandi mælaborð og sjálfvirkni sem keyrir án þín. Fyrsta keyrslan seldist upp, 15 sæti. Næsta dagsetning hefur ekki verið ákveðin. Skráðu þig á áhugalistann og þú fréttir fyrst.
Við notum þetta eingöngu til að láta þig vita þegar dagsetning liggur fyrir. Ekkert fréttabréf.
Hvað þú lærir
Fyrir hverja
Hvað þátttakendur segja
Virkilega fagmannlegt og gott námskeið, gott utanumhald og góður hraði. Við fórum hópur frá vinnunni og á þetta eftir að nýtast okkur vel í starfi. Það hefur strax auðveldað okkur…
Ég mæli eindregið með Claude námskeiði hjá Ara. Hann er virkilega fróður, útskýrir efnið vel og svarar öllum spurningum af mikilli þekkingu og vandvirkni. Endilega kíkið á…
Námskeiðið var mjög ýtarlegt, skipulegt og vel upp sett, kennarinn gerði efninu mjög góð skil og svaraði öllum spurningum skýrt og greinilega. Ótrúlegt hvað var hægt að komast…
Námskeiðið gaf góða innsýn í hversu öflugt verkfæri Claude er. Ég var að nota annað gervigreindartól fyrir námskeiðið en var snögg að færa mig yfir í Claude. Námskeiðið var vel…
Ótrúlega mikið sem þú náðir að fara yfir og kynna okkur fyrir. Frábært að fá allt þetta efni til stuðnings þegar maður fer svo að grúska meira sjálfur í framhaldi. Nú er bara…
Mjög gott og upplýsandi námskeið sem gerir mann öruggari í að nota gervigreindina.
Ánægður að hafa kynnst möguleikum sem Claude hefur uppá að bjóða. Byrjaður að feta mig áfram í Cowork og hvernig sú vinna getur gagnast mér. Hlakka til að fara á framhaldsnámskeið…
Að taka þátt í þessu AI-námskeiði á Íslandi var sannarlega augnaopnandi reynsla. Ég er þakklátur fyrir að hafa komist á Smart Teachers Play More AI-námskeiðið. Mér finnst ég ekki…
Mjög gott námskeið. Ég sem byrjandi með að nota Claude var stundum aðeins týnd í umræðunni en lærði margt sem mun nýtast mér áfram. Kennarinn afar áhugasamur og hjálplegur.
Ari kom með mikla orku inn í námskeiðið og fór yfir helstu þætti í Claude. Hann er mjög jákvæður og með þægilega nærveru.
Mjög gott námskeið.
Flott og gagnlegt námskeið.
Mjög vel sett upp, skýrt. Engar langlokur.
Vinnustofur fyrir fyrirtæki
Við komum til ykkar. Lokaðar vinnustofur sérsniðnar að ykkar verkfærum, ferlum og gögnum. Hvort sem um er að ræða 5 manns eða 100, byggjum við námsefnið utan um það sem fyrirtækið þitt þarfnast.
AI læsi og EU AI Act
4. grein EU AI Act fjallar um AI læsi. Henni var breytt í júlí 2026: nú skulu fyrirtæki sem þróa eða nota gervigreindarkerfi gera ráðstafanir til að styðja við AI læsi starfsfólks síns, og greinin tekur fram að ekki sé krafist þess að tryggja tiltekið stig AI læsis hjá neinum. Hún stofnar enga vottun. Gerðin bindur ekki Ísland í dag, enda hefur hún ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Námskeiðin okkar taka mið af 4. greininni og hver þátttakandi fer heim með vottorð sem skjalfestir þjálfun hans. Ef fyrirtækið er með starfsemi innan ESB getur greinin þegar átt við, og verði gerðin tekin upp hér byrjið þið ekki á núlli.
Sönnuð afrekaskýrsla
11
opin námskeið uppseld
80+
fyrirtæki þjálfuð
300+
fagaðilar þjálfaðir