GoFlowtics

Persónuvernd

Stutt yfirlit yfir hvaða gögn síðan notar og til hvers.

Hver ber ábyrgð

GoFlowtics ehf. ber ábyrgð á persónuupplýsingum sem safnast í gegnum goflowtics.com.

GoFlowtics ehf.Kennitala 690426-2340Bæjarhraun 8, 220 Hafnarfjörður

Spurningar um persónuvernd sendir þú á goflowtics@goflowtics.com.

Hvað við notum og til hvers

Heimsóknatalning

Vercel telur heimsóknir og mælir hve hratt síðan hleðst. Það notar engar vafrakökur og þekkir þig ekki aftur.

Greining, ef þú samþykkir

Google Analytics sýnir okkur hvaða síður eru skoðaðar og hvað virkar, til dæmis hvort fólk bókar fund.

Auglýsingar, ef þú samþykkir

Meta-pixillinn og Google segja okkur hvort auglýsingarnar okkar skila heimsóknum og bókunum. Google og Meta geta líka notað heimsóknina til að sníða auglýsingar að þér.

Fundabókun (Calendly)

Þegar þú bókar fund skráir þú nafn og netfang svo við getum haldið fundinn, sem fer fram á Google Meet. Ef þú hefur samþykkt vafrakökur skráum við að fundur hafi verið bókaður, án nafns eða netfangs.

Áhugalisti framhaldsvinnustofu (Tally)

Þú skráir nafn og netfang og ef þú vilt fyrirtæki og hvað þig langar að smíða. Við látum þig vita þegar dagsetning liggur fyrir. Ekkert fréttabréf.

Námskeiðskaup (Moment)

Miðasalan fer fram á tickets.moment.is, í miðasölukerfi vivenu, með greiðslu og vafrakökuborða Moment. Við fáum nafn og netfang kaupanda til að halda námskeiðið og gefa út vottorð. Ef þú samþykkir markaðskökur þar sjáum við kaup og upphæð í mælingum okkar, en ekki hver keypti.

Vafrakökur

Borðinn neðst á síðunni spyr í fyrstu heimsókn.

  • Samþykkja: Google Analytics og Meta-pixillinn hlaðast, fyrir greiningu og auglýsingar.
  • Hafna: ekkert frá Google eða Meta hleðst. Vercel telur heimsóknina áfram, án vafrakaka.

Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er með hnappnum „Stillingar vafrakaka“ neðst á síðunni.

Bókunardagatal Calendly og form Tally hlaðast beint frá þeim þegar þú opnar síðuna sem þau eru á, og nota eigin vafrakökur.

Síðan man líka tungumál og útlit sem þú velur, í vafranum þínum.

Hverjir koma að þessu

Þessi fyrirtæki vinna gögn fyrir síðuna, hvert samkvæmt eigin skilmálum.

  • Vercel: hýsing og heimsóknatalning.
  • Google: greining og auglýsingar, og dagatal og Google Meet fyrir fundi.
  • Meta: auglýsingar.
  • Calendly: fundabókanir.
  • Tally: áhugalistinn.
  • Moment og vivenu: miðasalan.

Gögn utan EES

Google, Meta, Calendly og Vercel eru bandarísk fyrirtæki, svo gögn geta verið unnin í Bandaríkjunum.

Hversu lengi

  • Vafrakökuvalið þitt: þar til þú breytir því.
  • Tungumálsvalið: þar til vafranum er lokað.
  • Google Analytics: samkvæmt geymslustillingunni okkar þar.
  • Aðrir: samkvæmt eigin skilmálum.

Þín réttindi

Þú getur alltaf spurt hvaða upplýsingar við höfum um þig og beðið okkur að leiðrétta þær eða eyða þeim. Samþykki fyrir vafrakökum getur þú dregið til baka hvenær sem er.

Sendu okkur línu á goflowtics@goflowtics.com.

Þú getur líka leitað til Persónuverndar á personuvernd.is.

Síðast uppfært 12. október 2026.